17.11.2011 | 11:59
Þriðjudagur
Huglægur tárafoss.
Þurr í augum en vætir sál.
Hljóðlaust en ærandi
öskrar sannleikurinn.
Hávært berstur hjartað
Sprengir vonina.
Ekkert er eins.
Eins er ekkert
sem áður var.
Samt er aftur þriðjudagur í næstu viku.
(GP)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
31.10.2011 | 00:37
...og að lokum í mínum trúar-vagnaveltum:
kæri herra Guð.
Nú trúi ég ekki á þig né það sem biblían stendur fyrir. En ég þarf að stíla þetta bréf á einhvern. Miðað við hver þú þykist vera eða það sem fólk segir þig vera þá ættir þú að geta svarað þessum spurningum um lífið sem valda mér miklu hugarangri.
Drengurinn minn, sá eldri, sagði við mig: Guð er bara risastór maður svífandi út í geimnum. Ég svaraði honum og spurði hvort Guð gæti ekki alveg eins verið lítill dreki,það hefði nú enginn séð hann. Hann hristi hausinn og sagði þá: Jesú er sonur hans,ég er alveg nauðalíkur pabba mínum..
Þó svo ég hafi ekki ennþá klárað að lesa ævisöguna þína þá man ég samt að þú átt að hafa skapað okkur í þinni mynd. Þannig að tæknilega séð hlýtur þetta að vera satt hjá drengnum.
Ég man líka samkvæmt biblíunni, nánartiltekið gamla testamentinu,eða það sem ég hef lesið af því, að þú ætlaðist til ansi margs af þeim sem trúðu á þig og sýndir illsku og öfund,þrjósku og jafnvel fýlu oftar en góðmennsku og fyrirgefningu.
Hvað um það,þetta bréf snýst ekki um þig "persónulega". Það snýst um óréttlæti heimsins og einkennist bréfið af "afhverju" og "hversvegna" spurningum, af því að þótt spurningarnar séu stórar þá getur maður stundum ekki orðað þær öðruvísi en einfaldlega td: Afhverju þurfa börn að fá sjúkdóma eins og krabbamein. Afhverju fá sumar konur aldrei að upplifa það að eignast börn þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir meðan sumar hverjar fara reglulega í fóstureyðingu. Afhverju þarf ungt fólk að deyja meðan fársjúk gamalmenni hálfrotna á elliheimilum og biðja til þín á hverjum degi um að fá að deyja.
Á það allt saman rætur sínar að rekja til þess að við átum vitlaust epli?
Hvernig getur guðfræðingur eða prestur sem hefur gengið í gegnum háskólanám virkilega ekki spurt endalausra hversvegna spurninga um orð biblíunar og Guðs.
Og afhverju heldur þetta áfram og áfram og áfram...
Lífið mun aldrei meika sens hvorki fyrr né síðar,en ef þú ert virkilega til,þá er lífið grimmt og ósanngjarnt.. eða ert það bara þú?
Undirskrifað
Guðríður Pétursdóttir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
24.10.2011 | 23:59
Ég trúi á trúna og trúleysið
Aðal ástæða mín fyrir trúleysi er sú að það er endalaus viðbjóður sem fer fram daglega í nafni trúarinnar og Jesú nafni.
Ég ólst upp í kristinni trú. Las bænirnar með mömmu,talaði um og við Guð,fór í sunnudagaskóla og var í barnakirkjukór.
Ég elskaði(og elska enn) jólin og þakkaði Guði fyrir þau.
Þegar ég var í grunnskóla var stelpa í bekk með bróðir mínum sem er fjórum árum yngri en ég. Fjölskylda hennar voru vottar jehova. Ég þekkti hana ekkert vel en ég man þegar hún var sótt af fjölskyldu meðlimi þegar hún fór með vinkonu sinni á jólabingó.
"Mér finnst jóladagatal sjónvarpsins ekkert svo jólalegt núna" sagði hún einu sinni við mig þegar við vorum að spjalla í frímínútunum. Núna þegar ég hugsa um þetta,og ég hugsa oft um þetta sérstaklega þegar jólin nálgast, þá hryllir mig við hverskyns óréttlæti fær að viðgangast í nafni trúarinnar. Saklaus börn sem fá engu ráðið eru neydd í trú sem þau skilja engan veginn. Jólin eru tekin frá þeim. Að maður tali nú ekki um allan viðbjóðinn úti í löndum,sem maður hefur aðeins lesið um og getur engan veginn náð að ímynda sér.
Í dag er ég hægt og rólega að taka biblíuna frá byrjun. Gengur hægt því ég verð svo reið. Les um kvenfyrirlitningu,hatur og ósanngirni. Ranghugmyndir.
Innst inni trúi ég samt.. ég trúi á "Guð". Eins og Guð er fyrir mér..
Fyrir mér er Guð alheims andi. Hann er heilög orka okkar mannanna. Hver og einn hefur sinn eigin Guð. Þinn Guð er þín eigin orka. Sá Guð sem þú trúir á og biður til er ekki sá sami og maki þinn,vinur þinn,amma þín eða annar biður til. Guð er líka orka látinna verndarengla/drauga.
Ég trúi ekki á neinn eða neina aðra en sjálfa mig. En ég trúi samt að það sé svo miklu meira bak við mig heldur en ég finn og upplifa. Bæði neikvæð og jákvæð orka annara (lifandi og látinna) svífur yfir manni og hefur áhrif á hvernig persóna maður er.
Öfga manneskjur eru fíklar og fíkn er sjúkdómur. Öfga manneskjur eyðileggja málstaðinn..! Í raun er trú enginn málstaður en fyrir öfgafólki er alveg sama hvað það er,fótbolti,trú,pólitík,jafnvel tónlist,þetta hættir að snúast um það sem það snýst um. Snýst bara um þráhyggju og þrjósku..sú staðreynd að þú hefur rétt fyrir þér en ekki sá sem hefur ekki sömu skoðanir.
Ég trúi á mátt bænarinnar,ég trúi á trúna.
ég trúi á lífið og sjálfa mig.
Ég trúi á "Guð".
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
21.9.2011 | 01:56
Í gær....
Flóki virðist seint átta sig á tímanum.. þá bara tímanum yfir höfuð. Vikudögunum, klukkunni, mánuðunum, árunum og aldrinum.. og svo framvegis. Það er eins og mamma segir alltaf "lítil börn geta ómögulega séð fyrir sér veröldina án þess að þau hafi verið til"
Ég reyndar man ekki eftir þessu með Hörð. Hann virtist ekki vera að velta þessu fyrir sér. Flóki aftur á móti miðar allt við það hversu oft hann þarf að sofa áður en að eitthvað gerist( sem hann þarf sem sagt að bíða eftir). Ég get ekki einu sinni byrjað að segja ykkur frá því þegar hann sofnar óvart um miðjan daginn eða kannski í bílnum á milli staða. Það gjörsamlega "fokkar" öllu upp.
Hann er líka með nokkuð frjótt ímyndunarafl og það virðist stundum sem svo að hann átti sig ekki alveg á hvort það sem hann sé að hugsa hafi gerst eða sé bara tilbúningur.. Hann byrjar oft sögur á þessu:" Í gær,þegar ég var stór og þú varst lítil þá..." og þá skal ég segja ykkur gerist eitthvað stórmerkilegt. Því þá var jafnvel enginn til nema hann og ég og þá var hann stór og gat þess vegna flogið en ég var lítil og var ekki góð í að fljúga og allt þar fram eftir götunum.. svo endar sagan á þessu:"..þetta er alveg satt,ég er ekki að grínast..!!"
Ég vildi ekki vera að hefta ímyndunaraflið hans og hugmyndaflugið og sagði alltaf já og amen við öllu.. en núna er hann að nálgast 5 ára og þetta fer að verða ansi tæpt.Ég hef prufað að segja "neeei ertu nú alveg viss...?" en alltaf skal fylgja"þetta er alveg satt,ég er ekki að grínast..!"
Mín familía er auðvitað vön þessu þegar hann talar svona.. þess vegna kannski hefur þetta líka gengið svona lengi,tíminn líður hratt og maður er vanur þessu.
Augu mín opnuðust örlítið í sumar. Við eyddum byrjun sumarsins uppi í sveit nánar tiltekið í Brekkuskógi í bústað þar. Þar búa skyldmenni hans úr föðurætt,meðal annars lítil frænka fáum árum eldri. Hún var hjá okkur í bústaðnum eina nótt og þau léku sér stundunum saman. En af og til kom hún mitt á milli þess að vera hissa og skelkuð og sagði í spurnar tón við mig:
"Hann.. hann sagði þegar ég var stór..?"
Ég saðgi henni þá bara að hann væri eitthvað að grínast og segja grínsögur.. þá fór hún aftur aðeins rórri..
Eitt skiptið kom hún samt verulega stressuð til mín og sagði mér frá því að hann hafi sagt að í gær þegar hann var stór og hún var lítil hafði hann búið til þessa mynd sem þau voru að horfa á..
Ég reyndi að halda andlitinu meðan ég sagði henni að þetta væri bara svona grín saga..
"Nei" sagði hún stóreygð og mikið niðri fyrir "Hann sagði að það væri alveg satt.. og hann væri EKKI að grínast..!!!"
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
26.7.2011 | 11:28
Hann er ekki efnilegur vondur úlfur
Það er leitun að því að finna eins góða bræður eins og drengina mína. Þá mína plús auka.
Í þessi sjö ár sem við Guðmundur höfum verið í "braski" man ég ekki eftir einu atriði þar sem Hörður og Magnús hafa rifist eða verið ósáttir.
Báðir eldri drengirnir eru óendanlega þolinmóðir við litla gremlingsinn hann Flóka. Þeir algjörlega umvefja hann.
Núna síðustu daga hefur Hörður verið í burtu hjá pabba sínum og hefur Magnús því einn þurft að takast á við litla monsterið. Hann tekur regluleg frekjuköst og þá þurfa allir að taka á honum stóra sínum með að varna því að hann vaði yfir alla á skítugum táslunum.
Í gær hafði Flóki verið heillengi inni í herbergi hjá Magnúsi að fylgjast með honum í tölvuleik. Á endanum var honum samt hent út af því hann var með leiðindi. Magnús læsti hurðinni svo hann kæmist ekki aftur inn. Flóki tók því ekki létt og barði frekjulega á hurðina og kallaði inn.
Stuttu seinna þurfti ég að komast inn með þvott svo ég bankaði og sagði"Þetta er ég,opnaðu.." skilaði þvottinum og fór út. Hurðinni var læst aftur.
Ég var varla komin fyrir hornið þegar ég heyri Flóka banka á hurðina og kalla með breyttri skrækri röddu:
"Þetta er ég,mamma mín,opnaðu.."
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.5.2011 | 23:20
Ekki þú.. ég..!!
Ég hef látið það fara í taugarnar á mér hvernig Flókapabbi talar við Flóka. Hann segir alltaf:"pabbi skal gera þetta" eða " komdu til pabba" eða jafnvel "pabbi vill að þú gerir þetta".. Eins og það sé yfirleitt einhver sjens að hann fatti ekki hvern hann er að tala um ef hann segir bara:" Ég skal gera þetta".
Það er ólíklegt að Flóki segi þá:"Vó,hver ert þú,identafy yourself..?!"
Allavega hefur Magnús elsti sonur hans copy-að þetta eftir honum og tekur alltaf fram nafnið sitt þegar hann biður Flóka um eitthvað. Magnús skal þetta og Magnús vill hitt.. Ég hef verið að reyna að fá þá til að breyta þessu og hætta að tala um sjálfa sig í þriðju persónu við drenginn og endurtek það sem þeir segja en í fyrstu persónu:"Ég.. Ég skal gera þetta"
Það tók Flóka sjálfan nokkuð langan tíma að fatta að maður talar ekki um sjálfan sig í þriðju persónu yfir höfuð og var hann örugglega kominn vel á 4 ár þegar hann hætti því.
Eitt skiptið þegar Magnús var hérna pöntuðum við pítsu. Sem er auðvitað ekki frásögum færandi sérstaklega. Nema að það hlýtur reyndar að hafa verið í byrjun mánaðar, maður pantar ekki pítsu í dag nema þegar maður á hjúts pening. Eins og þegar maður er nýbúinn að fá útborgað.
Og það var þá eins og alltaf,ekki fékkst Flóki til að éta nema nokkra bita af sinni sneið. Svo stakk hann af og hélt áfram að gera hvað sem það var sem hann var að gera.
Pítsan kláraðist mjög fljótt,enda ekki skrítið þegar það eru 5 manns sem berjast um hana. Það eina serm var eftir var sneiðin hans Flóka.
Magnús fór til Flóka og spurði hann "Flóki,má Magnús borða þína pítsu?" Ég heyrði hvað hann sagði og ég kallaði pirruð til hans til leiðréttingar:"Ég Magnús... Ég..!!"
"Ó,fyrirgefðu,ég vissi ekki að þú ætlaðir að borða hana"
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.2.2011 | 15:46
Ég baka ekki..
Það er satt,ég baka aldrei, ALDREI. Þá meina ég "aldrei" í þeim skilningi sem krakkar nota,ss ofursjaldan. Aldrei hljómar áhrifameira en ofursjaldan.
Í gær ákvað ég að baka í tilefni þessa algjörlega og einstaklega asnalega upptökudags sem var í gær. Sjáið til maðurinn sem ég hitti stundum kom mér á óvart og kom um miðja nótt með rauðvín handa okkur. Svo ég hugsaði að ég mundi baka handa honum hafrakökur sem hann er búinn að vera að væla um síðan hann komst yfir einhverja uppskrift hjá mágkonu sinni (takk Sigrún)
Það gekk eins og í nokkuð vel skrifaðri sögu eftir Astrid Lindgren og kökurnar slógu í gegn hjá manni og drengjum sem og bara sjálfri mér. Ég þar meðí svífandi sælu með hvað ég er einstaklega vel heppnuð. Allavega þennan mánudaginn.
Svo kom bráðlætið yfir mig í dag þar sem ég á von á frænku minni í heimsókn. Ég hugsaði fyrst að þær tókust svona vel í gær þá hlytu þær að takast vel í dag. Annað væri óhugsandi. Svo ég byrja, tek upp það sem ég þarf að nota en fatta að ég kláraði kókosolíuna í gær svo ég hleyp örfljót í búðina,sá eldri passar þann yngri á meðan.
Þegar ég kem heim og ætla nú að fera að smella öllu saman átta ég mig á því að það er ekki nóg af NEINU. Ekki haframjöli,ekki eplamauk ekki þessu spelt drasli .. Fyrr má nú drífa sig í búð ha?
Þá kemur yfir mig tilfinning sem ég kannast við og á ekki að gefa eftir. Fyrst ég var svona voðalega flink í gær þá gæti ég bara hent saman því sem ég á í skápunum og gert mína eigin útgáfu af hafrakökum..
Í hvert einasta skipti sem ég hef gert slíkt hefur það misheppnast svo herfilega og fallið í ekki mjög svo góðan meltingarveg að ég fer í fýlu og ætla aldrei að baka aftur..
Núna er ég komin í mjög týpískt skap meðan ég býð eftir að kökurnar bakist. Uppgjöf og vonleysi er að hrynjast yfir mig og augabrúnirnar síga niður og munnurinn fer í skeifu og mynda þennan líka fullkomlega ósjarmerandi fýlusvip..
Aumingja Hulda frænka. Ég lofa að baka ekkert næst þegar þú kemur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.2.2011 | 23:27
Það sem snjór þýðir fyrir mig
1. Þá þarf ég ekki að hafa kveikt á lampa þegar ég fer að sofa til að fæla burtu drauga og forynjur sem búa í myrkfælninni minni. Það er nóg að draga frá og allt lýsist upp.
2. Ég VERÐ að fara í flottu hlýrri skóna mína þótt ég nenni því ekki. Og þá verð ég að fara í fínni buxur en íþrótta buxur og þá dugar ekki bara venjuleg úlpa heldur þokkalegi jakkinn. Þannig að ég er oftast þokkalegaklædd í snjó.
3.Þegar það er snjór fer ég út með glas og fylli það af snjó og ét hann svo með skeið. Það er gott útaf tvennu sérstaklega. eitt, af því þá þarf ég að hlaupa upp og niður stigann til að ná í snjó(bý á fjórðu hæð) og tvö þá borða ég minna nammi. Þannig að ég grennist þegar það er snjór.
4. Ég á engan bíl svo ég þarf ekki að skafa bílinn í snjó. Ég fæ aftur á móti að horfa á illaklædda fólkið sem stendur og skefur rúðurnar af ákafa skjálfandi á beinunum meðan ég er,eins og ég sagði hér fyrir ofan,þokkalega klædd og alls ekkert kalt og labba það sem ég þarf að fara.
5. Góð ástæða til að ganga aftur í barndóm og fara með Flóka að næstu brekku að renna sér. Note to self: Mundu í næsta skipti að leyfa Flóka að renna sér líka.
Bloggar | Breytt 4.2.2011 kl. 03:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.12.2010 | 15:13
smá pæling = spæling
Ég get orðið svo reið þegar ég sé konur,mæður,skrifa alhæfingarstatusa á facebook um karlmenn. Og þá sérstaklega þær sem eiga drengi sjálfar. Allir menn voru litlir drengir einu sinni og svona flest allir áttu líkast til móður. Sem er kvenmaður.
Ég held að það sé kominn tími til kominn fyrir konurnar að líta kannski svolítið í eigin barm. Ef drengir heyra mæður sínar tala um karlmenn svona þá taka þeir það á endanum til sín. Þeir eru jú karlkyns. Nú er ég ekkert að segja að ég sé að ala mína drengi upp á fullkominn hátt. En ég á erfitt með þegja þegar ég sé kannski einhverstaðar standa: "Afhverju eru allir karlmenn svona miklir drullusokkar" eða "Það er segin saga,ekki hægt að treysta karlmanni"..!
Ég veit vel að það er alltaf verið að meina einhvern sérstakan en drengurinn manns veit það ekki. Hann venst því að heyra að allir karlar séu fávitar og drulludelar. Sjálfstraustið hlýtur að minnka hægt og örugglega við svona tal.
Það er verið að segja að allir eru jafnir og að það eigi að ala börnin sín upp þannig að þau séu í raun kynlaus. Ekki vera að klæða strák í blátt og stelpu í bleikt. Heldur frekar velja gult og grænt. Ekki er ég að skilja hver munurinn er á þessum litum.
Þá er líka spes að segja að allir karlmenn séu eitthvað serstakt. Því ef það er enginn munur á kynjunum þá hljóta allar konur að vera drullusokkar líka..
Mer finnst að þeir sem alhæfa ættu að hugsa hverja þeir eru i raun að kalla drullusokka og fávita.. Sonur þinn,pabbi og afi meðal annars mundu þá flokkast undir karlmenn og dóttir þín,móðir og amma flokast undir kvenmenn..
Hugsm um það næst áður en við alhæfum eitthvað og þá sérstaklega ef við gerum það fyrir framan börnin.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
1.11.2010 | 14:07
Topp tíu og ellefu
topp tíu og ellefu listi að mínu mati fyrir bæði karla og konur
1: Gefðu sjens. First impression er ekki alltaf the right impression. Ef fólk hittist á date-i eru miklar líkur á að það sé stressað og reynir of mikið. Það þarf auðvitað eki að taka það fram að það er ekkert að marka þegar maður hittist á djamminu.
2: Tjáðu þig um það sem angrar þig en það er óþarfi að vera of hreinskilin. Alla vega til að byrja með. Fólk er vart um sig í byrjun sambands og er auðsæranlegt. Sérstaklega ef það er verið að gagnrýna það.
3: Ekki vera of stressuð/stressaður þótt þið hafið ekki það margt sameiginlegt. Ef ykkur líkar við hvort annað þá gefur það mikla möguleika á að læra eitthvað nýtt. Plús það að mínu mati verður fólk að eiga eitthvað sem því finnst gaman að gera eitt en ekki með "kæró"
4: Passið að gera ekki lítið úr einhverju sem er mikilvægt fyrir hinum aðilanum,hversu lame ykkur finnst það vera. Hver einn og einasti einstaklingur hefur í það minnsta einn eða tvo svoleiðis hluti sjálfur sem ættu kannsnki ekki að vera eins merkilegir og manni finnst þeir.. En svoleiðis er það nú bara samt.Þitt ómerkilega er ekki merkilegra en hans eða hennar.
5: Þótt húmor hins einstaklingsins sé ekki alveg eitthvað sem þið hafið hlegið að vanalega er nauðsynlegt að gefa því sjens ef manni líkar við einstaklinginn. Hver veit,kannski finnst þér brandarinn allt í einu fyndinn þegar þú hefur kynnst manneskjunni betur og skilur húmorinn. Ef það gerist ekki þá er óþarfi að segja hvað þarf að gera.
6: Gefðu þér tíma til að hlusta á það sem hinum aðilanum finnst gaman að og ekki vera feimin/n að tala um það sem þér finnst skemmtilegt. En ekki verða sár þótt að manneskjan hafi kannski ekki heyrt hvert einasta orð í hvert sinn. Það gerist hjá öllum sem eru að hlusta á eitthvað sem þeir annað hvort skilja ekki eða hefur súper lítinn áhuga á. Ég mundi reyna að meta effortið í það minnsta.
7: Í sambandi við grín gagnvart hinu kyninu þá er orðið ansi erfitt fyrir nokkurn mann að tjá sig hvort sem það er í gríni eða ekki. Maður veit aldrei hvernig því verður tekið. Svo það er líklegast best að fara hægt í svoleiðis húmor meðan maður er að kynnast.
8: Það er engin bók eða mynd sem hægt er að nota sem guideline þegar maður er að kynnast strák eða stelpu..! Hver manneskja er einstök og þyrfti sér leiðbeiningabækling fyrir sig. Ekkert eitt gengur yfir alla í þessum efnum. Nema auðvitað basics, framkoma og virðing gagnvart hinum verður auðvitað að vera perfect.
9:Heiðarleiki er ekki nauðsynlegur í hvert eitt og einasta skipti. Heiðarleikann er hægt að stilla í hóf.
10: Framkoma og virðing. Ef eitthvað gengur fram af þér í sambandi við framkomu við þig er það auðvitað þú sem ákveður hvort gefa skuli sjensana eða fara. Ekki dæma fólk útfrá því hvað aðrir segja. Mundu að tjá þig. Ekki láta koma fram við þig eins og skít og þá sérstaklega ekki fyrir framan aðra. Ef einhver kemur ítrekað illa fram þá er það oftast nær af því að maður hefur gefið færi á því. Ekki gefa fólki færi á að fara illa með þig.!
11: Kynlífið.. Ekki skammast þín fyrir að hætta sambandi ef kynlífið er ekki gott eða ekki að gera sig fyrir þig. Kynlífið skiptir ekki öllu i sambandi en það skiptir miklu máli ef það er ekki eins og það á að vera. Ekki mundi ég vilja að einhver væri að hanga í sambandi með mér ef þeim finndist kynlífið ekki gott. Mér finndist það lítilsvirðing við mig.
Það væri svo sem hægt að telja upp eitt og annað meira. Td peninga mál,framtíðarplön og annað. En það er eitthvað sem kemur með tímanum. Þetta er aldrei bara komið og tilbúið. Þetta er ekki 6 months for trial og svo er allt eins og það á að vera í 50 ár. Þetta er konstant vinna..!
en þetta er bara minn listi.. og ég er bara einn einstaklingur eins og þið hin.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Tenglar
Ofnotað
Time well spent
- boomshine
- orisinal (leikir)
- Spot the difference (leikur)
- Klikkumst fyrir ísland
- Flight of the hamsters (leikur)
- gprime (leikir)
Görn og Baukar
eða börn og gaukar
- Mosi allur útí sófaskít
- Aðalsteinn Arnar
- Markús Steinar
- Fannsi Snæ
- Huldufólk
- ..Sá nýji..
- ..Sá gamli..
Súrir Pungar
- Death Clock
- White ninja comics
- Zombo dont forget to sign up for the newsletter
- Overheard in new yoerk
- Joe Cartoon
- Happy tree friends
- The Perry bible fellowship
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Júlí 2011
- Maí 2011
- Febrúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Janúar 2010
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007



brynja
guffaluff
heidistrand
ingvarvalgeirs
jonaa
marzibil
pulsuhundur
ringarinn
vigniro
laufabraud
asdisomar
hjolagarpur
curvychic
rattati
hugarfluga
danjensen
ommi
pesu
raggydoll
dreymandi



